Í næsta mánuði :)

Yesssss, nú getum við farið að tala um að Troy komi heim í NÆSTA mánuði InLove Í tilefni af því að þá erum við búin að bóka hótelherbergi og kaupa tveggja daga miða í Legolandi þann 27.-29. september. Bara stuð og bara gaman.

 Nú svo er litla barnið mitt að fara að byrja í öðrum bekk í þessum mánuði. Mér finnst hann stækka allt of fljótt. Mér finnst allt of langt síðan að hann var litli bleyjubossinn minn og hann passaði í fangið mitt þegar að ég hélt á honum. Hann verður orðinn táningur áður en ég veit af.

Við erum búin að bóka okkur íbúð í Austurríki um jólin og ætlum ég, Troy, Wyatt, Harley og mamma að keyra þangað og þar munum við hitta Sunnu, Sindra og Öggu. Við verðum nálægt einhverju fínu skíðasvæði og ætlum bara að hafa gaman :) Ég hlakka ekkert smá til. Það verður fínt að hafa svona afslappandi jól, síðustu jól voru nefninlega ekkert voðalega afslappandi. Þegar maður er á Íslandi að þá hefur maður einhvernveginn nóg annað að gera en að slappa af. Ég elska að hitta ykkur öll og myndi ekki breyta neinu en það er fínt að geta haft róleg jól, þá getur maður líka notið hátíðarinnar betur :)

 Annars er nú því miður ekki neitt að frétta. Hér gengur lífið bara sinn vanagang og nóg að gera hjá okkur alltaf :)


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ skvísí :)

Maður kíkir á bloggið og fær 2 blogg! Það er aldeilis dugnaðurinn, er bara búin að lesa þetta blogg og kommenta við það og síðan fer ég og les næsta :)

Æðislegt að tíminn sé að líða svona hratt og það fari að styttast í Troy! Ég VEIT með að börnin stækka of hratt, áður en við vitum verða þau gift og við ömmur :Þ

Pandran (IP-tala skráð) 4.8.2007 kl. 19:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Birnuborg

Höfundur

Inga Birna Vickers
Inga Birna Vickers
Hér er ég, um mig, frá mér, til mín.
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband